"Margir hafa verið óþreytandi við að viðra þann hleypidóm að menntun sé fyrst og fremst fólgin í kunnáttu sem nýtist í atvinnulífinu svokallaða, hagkerfinu sem nærist ekki síst á mannauðnum, fólkinu sem býr yfir kunnáttu til að keyra þetta kerfi áfram. Rétt eins og tilgangur mannlífsins sé að þjóna hagkerfinu, en ekki öfugt."